Laufdal og Drangar undirrita viljayfirlýsingu um samstarf í Miðtúni 1
Laufdal og Drangar hf. undirrituðu þann 27. apríl 2026 viljayfirlýsingu um samstarf sem snýr að uppbyggingu verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viljayfirlýsingin markar upphaf formlegra viðræðna milli aðila um frekari þróun verkefnisins.
Fyrir hönd Laufdals undirrituðu Eyjólfur Fannar Eyjólfsson og Nökkvi Páll Jónsson. Fyrir hönd Dranga undirritaði Auður Daníelsdóttir, forstjóri félagsins. Við undirritunina voru einnig viðstödd Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri.
Á ljósmyndinni má sjá Eyjólf Fannar Eyjólfsson meðeiganda Laufdals, ásamt Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga að undirritun lokinni.
„Undirritun viljayfirlýsingarinnar er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Miðtúnsreitsins. Við höfum unnið markvisst að þróun svæðisins undanfarin ár og sjáum skýr tækifæri til að styrkja þjónustugrunn þess í takt við vaxandi umsvif og eftirspurn. Samstarf við Dranga fellur vel að þeirri sýn og skapar grundvöll fyrir næstu skref í verkefninu,“ segir Eyjólfur Fannar Eyjólfsson meðeigenda Laufdals.
Stefnt að uppbyggingu atvinnuhúsnæðis
Samkvæmt viljayfirlýsingunni er stefnt að byggingu um 700 fermetra atvinnuhúsnæðis fyrir verslun ásamt tilheyrandi frágangi lóðar. Jafnframt er gert ráð fyrir samræmdri tímaáætlun um skipulag og framkvæmdir, auk viðræðna um frekari uppbyggingu á svæðinu, svo sem þjónustuinnviði, bílastæði og orkutengda innviði. Verkefnið snýr að uppbyggingu þjónustukjarna sem ætlað er að mæta vaxandi þörf fyrir verslun og þjónustu á svæðinu.
„Miðtún 1 er spennandi verkefni og teljum við samstarfið tryggja góðan grundvöll fyrir þá uppbyggingu sem framundan er á svæðinu. Það eru vaxandi tækifæri á þessu svæði og skýr áhersla á þróun þjónustuinnviða sem rímar vel við markmið Dranga að bjóða viðskiptavinum góða þjónustuupplifun.“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga
Stuðningur sveitarfélagsins við uppbygginguna
Miðtún 1 er hluti af stærra þróunarverkefni á svæðinu þar sem unnið er að uppbyggingu verslunar, þjónustu og ferðaþjónustu í Miðtúni 1–11. Innan þess ramma eru Miðtún 3–9 skilgreind sem lóðir fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi með möguleika á íbúðum á efri hæðum, á áberandi stað í einu fjölfarnasta ferðamannasvæði landsins.
Sérstök áhersla er jafnframt á Miðtún 11, þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu hótels með allt að 100 herbergjum. Verkefnið er lykilþáttur í að styrkja þjónustuframboð á svæðinu og skapa aukið virði til lengri tíma, meðal annars með því að styðja við vaxandi eftirspurn ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Verkefnin eru á þróunarstigi og eru hluti af heildstæðri sýn um uppbyggingu þjónustukjarna sem mætir þörfum íbúa, fyrirtækja og ferðamanna.
„Uppbygging sem þessi styður við áframhaldandi þróun svæðisins og bætir þjónustu fyrir íbúa, fasteignaeigendur og gesti. Verkefnið fellur að þeirri stefnu sveitarfélagsins að efla innviði og skapa aðstæður fyrir sjálfbæran vöxt í takt við þróun svæðisins,“ segir Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps.
Á ljósmyndinni má sjá Smára Kolbeinsson sveitarstjórnarmann, Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sveitarstjóra, Björn Kristinn Pálmarsson vara oddvita, Nökkva Pál Jónsson meðeiganda Laufdals, Eyjólf Fannar Eyjólfsson meðeiganda Laufdals, Auði Daníelsdóttur forstjóra Dranga, Ásu Valdísi Árnadóttur oddvita, Auði Daníelsdóttur forstjóra Dranga, Jón Anton Jóhannsson framkvæmdastjóri fasteignaþróunar Dranga, Ragnheiði Eggertsdóttur sveitarstjórnarmann

